Vöktun á ytra umhverfi:

Árlega eru framkvæmdar ítarlegar rannsóknir í umhverfi utan þynningarsvæðis verksmiðjanna á Grundartanga.  

 
Rannsóknir þessar eru samstarfsverkefni iðjuverana Norðuráls og Elkem Íslandi.   Yfirumsjón með vöktuninni hefur verkfræðistofan Mannvit.


Vöktunin skiptist í fernt, þ.e. Andrúmsloft, Árvatn, Gróður og Dýr
           

Andrúmsloft

 

Í andrúmslofti er fylgst með flúormagni (bæði loftkenndum og rykbundnum), rykmagni (sem PM10 og líka PM2.5) brennisteinsdíoxíði, nituroxíðum og á nýjustu stöðinni vetnissúlfíði.  Einnig eru í úrkomu mældir eftirfarandi eðlisþættir; flúor, súlfat og pH.
Nýjasta stöðin er staðsett við Kríuvörðu og er sjálvirki mælistöð fyrir ofangreint ásamt því að vera fullkominn alsjálfvirk veðuathugunarstöð. 


Árvatn

 

Í árvatni hefur frá upphafi verið mælt flúor, klór, súlfat, natríum og pH.


Gróður

Í öllum gróðri er mældur flúor ásamt næringarefnum í heyi og beitargróðri.
Fléttur og mosar eru talin viðkvæmar lífverur sem einvörðungu taka næringu úr lofti.  Fyrir vikið eru þau viðkvæm bæði  fyrir flúor og brennisteini (aðallega sem SO2).  Ákveðnir staðir hafa verið vaktaðir frá upphafi til þess að fylgjast með mosum og fléttum.  Ljósmyndir eru teknar af tilteknum reitum og myndir frá fyrri árum bornar saman við matsár.  Þannig er hægt að fylgjast með því hvort hnignun eða framganga eigi sér stað.  Einnig eru tekin sýni af mosum og fléttum skammt frá til þess að kanna styrk flúors og brennisteins í þeim.  Ekki hefur orðið vart við hnignun á viðmiðunarreitum síðan álverið var reist.

 


Dýr

 

Sauðfé er talið tiltölulega viðkvæmt gagnvart flúor.  Því hefur vöktun á sauðfé verið samfelld frá upphafi álversins.

Til þess að kanna áhrif frá flæðigryfju og hvort losun á PAH eða þungmálmum eigi sér stað er notast við vöktun með kræklingum.  Vöktunin er gerð á þeirri forsendu að kræklingar eru lindýr sem safna upp þessum efnum án þess að brjóta þau niður líkt og  æðri lífverur gera.  Allar niðurstöður hafa sýnt fram á lítil áhrif af völdum iðjuverana. 

Allt efni © Norðurál ehf.