Mæliaðilar.
Allar samanburðarmælingar og vöktunarmælingar í ytra umhverfi eru framkvæmdar af óháðum aðilum. Til þess að svo megi vera eru rannsóknaaðilar ráðnir til verka sem eru samþykktir af umhverfisyfirvöldum.
Eftirfarandi aðilar eru og hafa veitt sína þjónustu:
| Vöktunarþáttur |
Sýnatökuaðili(ar) |
Mæliaðili(ar)/Matsaðili(ar) |
| Loftgæði |
Nýsköpunarmiðstöð Íslands |
Nýsköpunarmiðstöð Íslands |
| Árvatn |
Nýsköpunarmiðstöð Íslands |
Nýsköpunarmiðstöð Íslands |
| Mosar og fléttur |
Náttúrufræðistofnun Íslands |
Náttúrufræðistofnun Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands |
| Gróður |
Skógrækt ríkisins og Nýsköpunarmiðstöð Íslands |
Nýsköpunarmiðstöð Íslands |
| Kræklingar |
Mannvit, Lífræðistofnun Háskólans |
Matis, Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði |
| Húsdýr |
Dýralæknar við sláturhús, bændur |
Nýsköpunarmiðstöð Íslands, dýralæknar og Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum við Keldur |
| Hey og beitargróður |
Ræktunarsambönd |
Landbúnaðarháskóli Íslands |
|
|
|
Með reglubundnu millibili eru framkvæmdar samanburðarmælingar til þess að staðfesta mæli- og/eða útreikniniðurstöður Norðuráls.
Eftirfarandi aðilar hafa séð um mælingar:
| Vöktunarþáttur |
Tíðni |
Sýnatöku- og mæliaðili |
| Flúorstyrkur í þurrhreinsuðu lofti frá kerjum. |
1 sinni á ári |
Nýsköpunarmiðstöð Íslands |
| Rykstyrkur í þurrhreinsuðu lofti frá kerjum. |
1 sinni á ári |
Nýsköpunarmiðstöð Íslands |
| Brennisteinsdíoxíð í þurrhreinsuðu lofti frá kerjum. |
1 sinni á ári |
Nýsköpunarmiðstöð Íslands |
| PAH styrkur í þurrhreinsuðu lofti frá kerjum. |
2-5 ára fresti |
Nýsköpunarmiðstöð Íslands |
| Styrkur kolflúoroefnasambanda í þurrhreinsuðu lofti frá kerjum. |
2-5 ára fresti |
Aneco |
| Flúor í ræstilofti kerskála |
1 sinni á ári |
Nýsköpunarmiðstöð Íslands |
| Ryk í ræstilofti kerskála |
1 sinni á ári |
Nýsköpunarmiðstöð Íslands |
| Brennisteinsdíoxíð í ræstilofti kerskála |
1 sinni á ári |
Nýsköpunarmiðstöð Íslands |
| Mælingar á rykmagni í öðrum skorsteinum eða loftfráveitum. |
1 sinni á ári |
Nýsköpunarmiðstöð Íslands |
| Mælingar á svifögnum, áli, flúor, pH og þungmálmum í affallsvatni. |
6 sinnum á ári |
Nýsköpunarmiðstöð Íslands |
| Mælingar á þungmálmum og sýaníði í sjó í og frá kerbrotagryfju. |
3 sinnum á ári |
Nýsköpunarmiðstöð Íslands |