Mælitæki.
Losun efna í umhverfið út um skosteina þurrhreinsivirkjanna upp um rjáfur kerskálanna er mæld með fullkomnum mælitækjum. Hér eru helstu upplýsingar um þann mælabúnað sem notaður er í álveri Norðuráls á Grundartanga ehf.
Þurrhreinsivirki 1 er elsta þurrhreinsivirki álversins.
Mælar í virkinu eru:
NEO HF Monitor til mælinga á styrk vetnisflúoríðs í útblæstri. Mælirinn var framleiddur af Norsk Elekro Optik AS og er þessi tegund mæla ekki lengur framleidd. Arftaki þessa mælis er NEO LaserGasTM og byggir hann á sömu tækni og mælir Norðuráls.
Linkur: http://www.neomonitors.com/products/technology.html
NEO DM3-MR-Monitor til mælinga á rykmagni í útblæstri. Mælirinn var framleiddur af Norsk Elekro Optik AS og er þessi tegund mæla ekki lengur framleidd. Arftaki þessa mælis er NEO DM4 Open Path Dust Monitor og er hann sambærilegur við mæli Norðuráls.
Linkur: http://www.neomonitors.com/pdf/dust_dm4.pdf
Til mælinga á styrk brennisteinsdíoxíðs er notaður 43C SO2 Analyzer frá Thermo Environmental Instuments Inc. Þessi mælir er ekki lengur framleiddur.
Linkur: http://alpha.cleanaireurope.com/page.php?u=produit&idprod=173&lang=no
Í þurrhreinsivirkjum 2 – 4 er notaður mælabúnaður frá þýska fyrirtækinu Sick. Mælar í skorsteinum virkjanna eru:
GM700 In-situ Laser Gas Analyzer mælir styrk vetnisflúoríðs, FW100 Dust Concentration Monitor mælir rykmagn og styrkur brennisteinsdíoxíðs er mældur með GM31 Multi Component Gas Analyzer. GM31 er ekki lengur framleiddur en álíka mælir er GM32 og byggir hann á sömu mælitækni og hefur sambærilega mælinákvæmni.
Linkar:
GM700 http://www.sickmaihak.com/sickmaihak/product/categories/gasanalysis/gm700/en.html
GM32 http://www.sickmaihak.com/sickmaihak/product/categories/gasanalysis/gm32/en.html
FW100 http://www.sickmaihak.com/sickmaihak/product/categories/dust/fw100ex/en.html
Loftflæði í öllum skorsteinum álversins er reiknað út frá mælingum á yfirþrýstingi í inntökum þurrhreinsivirkjanna.
Í rjáfrum kerskálanna er símæling á styrk vetnisflúoríðs með Boreal GasFinder 2.0 mælum. Loftflæði um kerskála er metið með loftflæðimæligrindum sem byggja á mismunaþrýstingsmælingum.
Linkur: http://www.boreal-laser.com/