Mælingar

Norðurál einsetur sér að vera í fremstu röð við mælingar og áreiðaleika niðurstaðna.  Þeir staðir sem eru mikilvægastir gagnvart losun mældir með sjálfvirkum símælitækjum.  Mælitæki Norðuráls mæla loftkenndan flúor sem vetnisflúoríð, svifryk, brennisteinsdíoxíð og nituroxíð.


Þessi mælitæki eru öll yfirfarinn reglulega.  Til staðfestingar á áreiðanleika mælinga eru óháðir mæliaðilar fengnir til að gera samanburðarmælingar.  Komi fram mismunur er hann leiðréttur í samræmi við kvörðunarmælingar.  Einnig eru mælingarnar á  losun efna bornar saman við niðurstöður reiknilíkana.

 

Fjölþætt tækifæri

Oft er sagt að helsta auðlind Íslands séu íbúarnir. Dugnaður er þessari litlu þjóð á hjara veraldar í blóð borinn og menntunarstig óvíða hærra á byggðu bóli, ekki síst meðal ungs fólk. Öfugt við það sem margir halda eru álver ákaflega fjölbreyttir vinnustaðir. Þverskurður af samfélaginu. Ýmsir sjá bara kerskálana en að baki þeim er fjöldi sérfræðinga við ýmis störf.

Hjá Norðuráli hafa flestir sérfræðingar menntun á sviði verkfræði og tæknifræði en einnig er þar að finna viðskiptafræðinga og fólk með háskólapróf í efnafræði, eðlisfræði, tölvunarfræði og sálfræði, svo fátt eitt sé nefnt. Þá eru ótaldir allir iðnaðarmennirnir og ófaglærða starfsfólkið sem gegnir mikilvægu hlutverki hátæknistörf og öðlast mikilvæga sérhæfingu við nám og störf. Síðast en ekki síst býður Norðurál fjölda ungmenna vel launuð sumarstörf sem skipta sköpum með námi. Það gefur því auga leið að tækifæri fyrir ungt fólk eru mörg í áliðnaði.

Álframleiðsla skapar líka fjölþætt atvinnutækifæri í afleiddum störfum og þar með svigrúm fyrir áræðið ungt fólk sem finnur frumkvöðulseðli sínu farveg í margvíslegri einkarekinni þjónustustarfsemi við álver, allt frá þrifum upp í ýmsa verktöku og sértækar lausnir. Leiðir Norðuráls og ungs fólks liggja reyndar víðar saman því að fyrirtækið styður íþrótta- og æskulýðsstarf bæði á Vesturlandi og á Suðurnesjum

 

Allt efni © Norðurál ehf.