Hugmyndafræði heilsuársins
Helsta ástæða þess að breyting á lífsstíl nær ekki að festast í sessi er sú að fólk setur sér of háleit markmið á of skömmum tíma þannig að það missir móðinn á leið sinni að markmiðinu. Þá er gott að hafa stuðning við að breyta lífsstíl sem meðal annars fæst með aukinni vitneskju um ýmis heilsutengd málefni. Þess vegna var ákveðið að heilsuárið hjá Norðurál snúist um þrjá þætti sem skipta máli þegar horft er til heilsu fólks.
- Vitneskja= Fyrirlesarar fræða okkur um það sem máli skiptir til að lifa góðu lífi og við góða heilsu. Rétt þekking er einfaldlega forsenda þess að við getum tekið ábyrgð á eigin heilsu og líðan.
- Lífstíll = Kynningar og fyrirlestrar á beinum aðgerðum sem snúa að líkamlegri og andlegri heilsu. Aðgerðir geta snúið að breytingum á hegðun (dæmi: hætta að reykja) eða bættri hegðun (dæmi: hreyfa sig meira). Hver og einn ákveður sinn lífsstíl og það getur tekið tíma að komast að raun um hvað hentar hverjum einstaklingi fyrir sig. Áhrif eins okkar sem ákveður að breyta um lífsstíl eða bæta hann, eru mikil á þá sem hann umgengst. Munið að við höfum öll áhrif á þá sem eru í kring um okkur, bæði fjölskyldu og vinnufélaga.
- Forvarnir= Kynningar og fyrirlestrar á forvörnum á öllum sviðum hvort sem um er að ræða vinnustað, heimili, fjölskyldu eða annað. Sem dæmi má nefna forvarnir ungmenna vegna vímuefna, forvarnir gegn algengum sjúkdómum, notkun hjálma þegar hjólað er og svo framvegis.
Á heilsuárinu er ætlunin styðja við starfsfólk og fjölskyldur þeirra til að huga að betra lífi. Nú er tækifæri til að gera breytingar á lífsstíl hvort sem þær stórar eða smáar. Boðið verður upp á fyrirlestra til að auka vitneskju starfsmanna reglulega á ýmsum sviðum sem viðkoma breytingum á lífsstíl. Þá verður því fylgt eftir með aðgerðum sem snúa að lífsstílsbreytingum og verða í boði í ýmsu formi. Myndin hér að neðan sýnir hvernig þessir þættir vinna saman, styðja hvern annan og auðvelda starfsmönnum að breyta sínu lífi til hins betra.