Útilega í sumar

 

 Ætlar þú í útilegu í sumar? hér fyrir neðan er að finna ýmsar upplýsingar fyrir útileguna.

 

Tjalda.is

Nú þegar sumarið er í hámarki er tilvalið að skella sér í skemmtilega útilegu. Fjöldinn allur af tjaldsvæðum eru um allt land og getur því stundum verið erfitt að ákveða hvert skal haldið.

 

Tjalda.is er síða með alhliða upplýsingum fyrir útileguna. Þar er meðal annars að finna lista yfir öll tjaldsvæði landsins og flokkuð eftir landshlutum, einnig eru upplýsingar um hvernig aðstaðan er á tjaldsvæðinu, hvað er til staðar og hvað ekki, ásamt verðskrá, korti af staðnum og myndum af tjaldsvæðinu.

 

Ásamt öllu þessu er listi yfir áhugaverða staði til að skoða eða hluti sem hægt er að gera á ferð þinni um landið, góðar uppskriftir á grillið og tékklisti sem gott er að hafa við höndina svo að ekkert verði eftir heima. Síðan er mjög auðveld og þægileg í notkun og því alveg upplagt að kíkja á hana við undirbúninginn áður en lagt er af stað í ferðalagið. Hér er hægt að skoða síðu tjalda.is

 

Safetravel.is

Að mögu þarf að huga þegar ferðast er um landið. Hættur geta leynst víða, til dæmis í einstakri náttúrunni og á vegum landsins og er því gott að vera vel undirbúin fyrir ferðalagið eða útivistina.

 

Safetravel.is er síða á vegum Slyslavarnarfélagsins Landsbjörg og hefur hún að geyma ýmsar hagnýtar upplýsingar um útivist, akstur á vegum og náttúru Íslands. Hér er hægt að skoða síðu safetravel.is.

 

 

Góð heilsa er munaði betri. - ókunnur höf.

Allt efni © Norðurál ehf.