Eigin ábyrgð

 

Við þurfum öll að axla ábyrgð í lífinu. Mikilvægt er  að við gerum okkur grein fyrir því að við berum ábyrgð á lífsstíl okkar og heilsu og að við erum þau einu sem getum breytt lífsstílnum til hins betra. Margar leiðir eru til að taka ábyrgð á eigin líkamlegri heilsu og sálarlífi. Oft haldast þessir þættir í hendur þannig að ef öðrum þeirra er sinnt vel eykst vellíðan á hinum þættinum einnig. Stuðningur getur skipt sköpum þegar verið er að breyta lífsstíl og einnig aukin vitneskja um þá þætti sem skipta máli.

 

Þess eru mörg dæmi að þegar hópur manna leggst sameiginlega á árarnar í átt að ákveðnu markmiði, getur ótrúlegur árangur náðst! Gott dæmi er e.t.v. árangur Norðurálsmanna við að bæta öryggið á vinnustaðnum.  Á heilsuárinu gætum við haft sameiginlegt markmið að velja heilsusamlegt fæði og hreyfa okkur meira. Einstaklingurinn hefur einnig mikil áhrif á hópinn, t.d. með hollu mataræði, en því miður eru áhrifin gjarnan söm þegar um slæmar matarvenjur er að ræða! Hægt er að breyta miklu en það er allt undir okkur sjálfum komið og gerist ekki nema við tökum ákvörðun og framfylgjum henni.

 

Tökum ábyrgð á eigin heilsu og höfum jákvæð áhrif á umhverfi okkar. Að breyta hegðun er ákvörðun - tökum ákvörðun um betri heilsu til framtíðar og njótum svo árangursins!

 

 

Snilligáfa er 1% innblástur og 99% vinnusemi. - Thomas A. Edison 

Allt efni © Norðurál ehf.