Saga Norðuráls

 

Norðurál ehf. er í eigu Century Aluminum sem er með höfuðstöðvar í Monterey í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Century Aluminum rekur tvö önnur álver og á helmingshlut í því þriðja.

 

Century Aluminum festi kaup á Norðuráli í apríl 2004 en áður var fyrirtækið dótturfyrirtæki Columbia Ventures Corporation (CVC) sem er með höfuðstöðvar í Vancouver, Washington í Bandaríkjunum og er í eigu Kenneth D. Peterson Jr.

 

Árið 1995 ákvað CVC að reisa nýtt álver. Eftir að ýmsir möguleikar höfðu verið athugaðir var ákveðið að álverið yrði reist utan Bandaríkjanna. Í ágúst 1996 varð ljóst að Ísland væri besti kosturinn og var fyrsta skóflustungan að Norðuráli á Grundartanga tekin í apríl árið 1997. Aðeins 14 mánuðum síðar eða í júní 1998 var fyrsta kerið gangsett.

 

Framleiðslugeta Norðuráls var í fyrsta áfanga 60.000 tonn á ári og sumarið 2001 var hún aukin í 90.000 tonn á ári með gangsetningu annars áfanga.  Á árinu 2006 var framleiðslugetan aukin í 220 þúsund tonn og í 260 þúsund tonn árið 2007. Á síðasta ári voru yfir 280.000 tonn af áli framleidd á Grundartanga. 

 

Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi og er stofnkostnaður þess um 900 milljónir Bandaríkjadala og brúttóársvelta um 500 milljónir dollara. Með Norðuráli breyta Íslendingar hluta þeirrar miklu orku sem landið okkar býr yfir í útflutningsverðmæti og ýta undir vistvæna orkunotkun.

 

Eiginleikar áls

Eiginleikar álsins eru ótvíræðir þegar kemur að listsköpun enda efnið létt og meðfærilegt. Það er ekki síður sjónræni léttleikinn sem fangar ímyndunarafl listamannanna og hæglega má tengja það þyngdarleysinu. Áferð áls minnir um margt á himininn og það er engin tilviljun að inntak sumra listaverka úr áli tengist háloftunum og flugi. Álið verður þannig andhverfa jarðar.

Ál hefur lengi verið býsna vinsæll miðill erlendis og hefur t.d. orðið lista- mönnum að yrkisefni í hönnun tískufatnaðar, skartgripa, húsgagna, bifreiða og bygginga. Ál var ekki mikið notað í listum hér á landi áður en myndhöggvarar með Steinunni Þórarinsdóttur í broddi fylkingar tóku það í sína þjónustu fyrir fáeinum árum. Álmennin hennar hafa nú tekið sér bólfestu víða um lönd.

 

Allt efni © Norðurál ehf.