Umhverfismat
Álverið í Helguvík hefur farið í gegnum ítarlegt mat á umhverfisáhrifum og fengið öll leyfi sem nauðsynleg eru til að hefja byggingu og starfsemi.
Skýrsla um mat á umhverfisáhrifum álvers í Helguvík
Álit Skipulagsstofnunar á mati á umhverfisáhrifum
Starfsleyfi frá Umhverfisstofnun fyrir álver í Helguvík
Það er stefna Norðuráls að halda ytra og innra umhverfi í því horfi að álverið í Helguvík verði eitt umhverfisvænsta álver í heimi.Vel er vandað til útlits- og umhverfishönnunar. Unnið hefur verið náið með heimamönnum og gert er ráð fyrir að draga mjög úr sjónrænum áhrifum álversins með gerð jarðvegsmana og gróðursetningu. Ennfremur verða byggingar og umhverfið útfært þannig að sem mest dragi úr ásýndaráhrifum.
Starfsleyfi
Starfsleyfi álversins er veitt með því skilyrði að það fullnægi ströngustu kröfum varðandi losun efna. Ítarlegu eftirliti með umhverfisáhrifum verður framfylgt af sjálfstæðum aðilum undir stjórn Umhverfisstofnunar Íslands. Álverið í Helguvík fellur undir íslenska ákvæði Kyoto-bókunarinnar og samræmist stefnu íslenskra stjórnvalda um útstreymi gróðurhúsalofttegunda. Bestu fáanlegum mengunarvörnum verður beitt og Norðurál mun stuðla að vísindarannsóknum á mögulegum leiðum til kolefnisbindingar og endurvinnslu.
Norðurál Helguvík sf. hefur fengið 539.000 tonna losunarheimildir fyrir árin 2010 til 2012.