Fræðsla til forvarna
Norðurál hefur gert samstarfssamning við Berent Karl Hafsteinsson um miðlun forvarnaefnis til barna– og unglinga í grunnskólum í nágrenni við athafnasvæði Norðuráls.
Meginmarkmiðið er að stuðla að aukinni meðvitund um öryggisþætti og almenna umferðarfræðslu meðal nemenda og í því samhengi miðlar Berent af eigin reynslu.
Berent Karl lenti í alvarlegu mótorhjólaslysi árið 1992 á Akranesi, en um fimmtungur beina í líkama hans brotnuðu. "Ég var í spyrnu við félagana og ætlaði að sýna þeim hver væri bestur á Skaganum," segir Berent Karl en hann giskar á að hann hafi ekið á yfir 200 km hraða. "Ég lenti síðan ofan í holu og missti stjórn á hjólinu, hentist út í grjótgarð og hlaut 47 beinbrot og þar af 9 opin. Verst var þó að vinstri fóturinn mjölbrotnað og þurfti að taka hann af í áföngum." Berent var meira eða minna á sjúkrahúsi í hálft ár enda braut hann níu hryggjarliði, tvo hálsliði auk þess sem vinstri hendin skaddaðist mikið. "Það bjargaði mér hvað ég var vel á mig kominn þegar égslasaðist. Ég var mikið í líkamsrækt en léttist mikið og fór úr 77 kílóum í 44 kíló við sjúkrahúsvistina," segir Berent sem aldrei hefur látið bilbug á sér finna þrátt fyrir gervifót og stöðuga endurhæfingu. "Nú eru 17 ár liðin frá slysinu og ég hef einsett mér að miðla af reynslunni eins og heilsan leyfir. Það er mín köllun að fyrirbyggja að aðrir þurfi að ganga í gegnum sömu reynslu og ég. Berent hefur gengist undir ótal aðgerðir síðan slysið varð, auk þess sem hann hefur tvisvar lent í bílslysi á þessum tíma, en var í fullum rétt. “Ég er gangandi kraftaverk, það er bara þannig, því samkvæmt öllum líkindaútreikningum ætti ég ekki að vera til”, segir Berent.
“Ég hlakka til að starfa með Norðuráli og er gríðarlega þakklátur fyrirtækinu að styðja mig í þessu þarfa verkefni”, segir þessi kraftaverkamaður að lokum. Norðurál hefur gert samstarfssamning við Berent Karl Hafsteinsson um miðlun forvarnaefnis til barna– og unglinga í grunnskólum í nágrenni við athafnasvæði Norðuráls. Megin markmiðið er að stuðla að aukinni meðvitund um öryggisþætti og almenna umferðarfræðslu meðal nemenda og í því samhengi miðlar Berent af eigin reynslu.