Norðurál þáttakandi í Fab Lab smiðju á Akranesi

Norðurál hefur undirritað samstarfssamning um nýsköpunarverkefni á Akranesi.

Um er að ræða stafræna „Fab Lab" (Fabrication Laboratory) smiðju sem gefur ungum sem öldnumtækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna, móta hugmyndir sínar og hrinda þeim í framkvæmd. Smiðjan er ætluð frumkvöðlum, nemendum, almenningi, fyrirtækjum og stofnunum en verkefnið miðar að því að skapa möguleika á aukinni fjölbreytni í atvinnulífi á Vesturlandi.

Í samstarfinu felst að Norðurál styrkir verkefnið fjárhagslega en einnig verður fyrirtækið tengiliður verkefnsins við atvinnulífið á Vesturlandi.

Stuðningur Norðuráls er liður í þeirri stefnu fyrirtækisins að styðja við uppbyggilegt starf í heimabyggð.


Samstarfssamninginn undirituðu Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar, Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri á Akranesi, Hörður Helgason, skólameistari FVA og Ólafur Sveinsson frá SSV ráðgjöf og þróun. Fulltrúi Norðuráls í verkefnisstjórninni verður Fjalar Ríkharðsson.

 

Sjá nánar á www.akranes.is/frettir  

 

Senda á Facebook
Allt efni © Norðurál ehf.