Starfsmannasamtöl
Norðurál leggur ríka áherslu á að allt starfsfólk sklji hlutverk sitt og ábyrgð og fái reglulega uppbyggilega endurgjöf. Árleg starfsmannasamtöl eru liður í því markmiði. Samtalið er á milli starfsmanns og stjórnanda og er haldið samkvæmt samkomulagi.
Í samtalinu er rætt um allt sem snertir starfið beint eða óbeint.
· Frammistöðu
• Styrkleika og veikleika
• Samskipti og líðan
• Starfsþróun / fræðslu
• Verkefna- og ábyrgðarsvið
• Starfsánægju og starfið sjálft
• Stjórnun
• Framtíðaráform
• Umbætur og markmið
• annað sem mikilvægt er að ræða