Fræðsla og starfsþróun

Starfsþróun og fræðsla eru lykilþættir til þess að tryggja starfsmönnum Norðuráls hæfni sem er til fyrirmyndar í áliðnaði og fyrirtækinu til hagsbóta. Hjá fyrirtækinu er lögð áhersla á lifandi og metnaðarfullt fræðslustarf.  Árið 2009 tóku starfsmenn þátt í um það bil 18.000 kennslustundum og er stefnan að viðhalda þessum góða árangri á næstu árum. Námskeið eru oft löguð að þörfum starfsfólks og þegar hægt er eru þau haldin á vinnustaðnum þar sem starfsfólk getur sótt þau á vinnutíma. 
 
Þörf starfsmanna fyrir þjálfun og starfsþróun er metin árlega í samræmi við metnað og hæfni einstaklingsins og þarfir fyrirtækisins. Almennt gildir sú regla að yfirmenn sviða og deilda og fræðslustjóri skipuleggja fræðslustarf (í samráði við framkvæmdastjóri hvers svið) hvort heldur sem er innan eða utan fyrirtækisins og er allt fræðslustarf háð fyrirfram samþykki þessara aðila.

 

Að áli skaltu aftur verða

Ál hefur verið kallað græni málmurinn vegna þess hve vel það er fallið til endurvinnslu. Endurvinna má málminn aftur og aftur án þess að hann tapi eiginleikum sínum og ekkert dregur úr gæðum álsins, sama hve oft það er endurunnið. Almennur áhugi er á endurvinnslu áls enda er hún skynsamleg frá sjónarmiðum hagkvæmni, tækni og umhverfisverndar. Ætla má að um 30% þess áls sem nú eru í notkun í heiminum séu endurunnin.

 

Allt efni © Norðurál ehf.