Starfsfólkið

Norðurál er einn af stærstu vinnustöðum á Vesturlandi og starfa þar ríflega 500 manns.  Um 80% starfsmanna eru búsettir í nágrannasveitafélögum, þar með talið á Akranesi,  í Borgarbyggð eða Hvalfjarðarsveit. Starfshópurinn hefur fjölbreyttan bakgrunn hvað varðar menntun, reynslu og aldur. Við teljum slíka fjölbreytni styrkja starfsemi okkar og hjálpa okkur að ná frammúrskarandi árangri. Norðurál leggur ríka áherslu á að komið sé fram við alla starfsmenn á réttlátan hátt og vill stuðla að jöfnu hlutfalli karla og kvenna innan fyrirtækisins.

 

Mannauður Norðuráls (pdf)

 

Ráðningar

Það er markmið Norðuráls að ráða hæft og metnaðarfullt starfsfólk. Fyrirtækið sækist eftir starfsmönnum sem hafa vilja til að takast á við nýja hluti, sýna frumkvæði og leita ávallt leiða til að vinna störf sín eftir bestu getu og af heilindum.

Hjá Norðuráli er notast við faglegt ráðningarferli sem tryggir samræmi í ráðningum og árangursríkar aðferðir við mat á hæfi umsækjenda. Stjórnendur eru meðvitaðir um að vel heppnaðar ráðningar er líklegar til þess að leiða til minni starfsmannaveltu, meiri starfsánægju og minni fjarvista. Þær eru jafnframt líklegar til að hafa jákvæð áhrif á framleiðni og árangur fyrirtækisins.

 

Umsóknir

Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð á vef Norðuráls (nordural.is) og í móttöku fyrirtækisins. Allir umsækjendur sem sækja um í gegnum vef Norðuráls fá sjálfvirkan tölvupóst sem staðfestir að umsókn þeirra hafi borist. Öllum umsóknum um auglýst störf er svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Í öllum tilfellum ríkir fullkominn trúnaður varðandi umsóknir.

 

Hafðu samband

Vinsamlegast hafið samband við mannauðsviðið í síma 430 1000 eða með tölvupósti nordural hjá nordural.is

 

Allt efni © Norðurál ehf.