Undirbúningur fyrir ráðningarviðtal vegna sumarstarfs hjá Norðuráli
Mikilvægt er að koma vel undirbúinn fyrir ráðningarviðtal.
Markmiðið með ráðningarviðtali er að kanna hvort að menntun, hæfni, þekking, áhugi og reynsla umsækjanda komi heim og saman við starfið sem verið er að ráða í. Það er hagur beggja aðila að þessi atriði fari öll vel saman og því mikilvægt að réttar upplýsingar komi fram bæði af hálfu vinnuveitanda og umsækjanda. Í viðtalinu fær umsækjandi tækifæri til að sannfæra vinnuveitandann um að hann sé rétti aðilinn í umrætt starf.
Gott er að hafa í huga eftirtalin atriði:
- Mæta stundvíslega í viðtalið. Það veitir öryggiskennd að mæta tímanlega og geta farið í huganum yfir þau atriði sem æskilegt er að komi fram.
- Smelltu hér til að sjá leiðina frá Reykjavík.
- Vera snyrtileg/ur til fara.
- Reyna að gera sér grein fyrir hvað vinnuveitandi kemur til með að spyrja um. Til dæmis hverjir eru helstu styrkleikar og veikleikar umsækjanda í viðkomandi starf.
- Vera búin/n að velta fyrir sér og skrifa niður spurningar sem koma upp í hugann um starfið og fyrirtækið.
- Hafa með sér blað og penna til að punkta niður minnisatriði.
- Mikilvægt er að hafa meðferðis ökuskírteini, gögn um ástundun í skóla og skírteini um vinnuvélaréttindi ef slíkt er til staðar.
- Umsækjendur um iðnaðarstörf (rafvirkjar, vélvirkjar) þurfa að taka með sér upplýsingar um menntun á þessu sviði.
Gangi þér vel!