Helstu verkefni framleiðslustarfsmanns í kerskála

 

Áltaka

Það nefnist áltaka þegar álið er sogið úr kerunum og að öllu jöfnu þarf að taka ál úr hverju keri einu sinni á sólarhring. Kerin í verksmiðjunni eru 520 að tölu, helmingur þeirra er áltekin á dagvöktum og hinn helmingurinn á næturvöktum. Við áltöku er málmurinn soginn upp úr kerunum í deiglur sem eru hangandi í þar til gerðum fjarstýrðum brúkrana. Hver deigla rúmar málm úr þremur til fjórum kerum í senn og eru u.þ.b. 1500 kg tekin úr hverju keri hverju sinni. Deiglurnar eru síðan fluttar í steypuskálann á deigluvagni sem dreginn er af sérstökum deiglubíl, þar sem þær eru tæmdar í biðofna og bíða þess að steypt sé úr álinu. Steyping álsins er framkvæmd af starfsmönnum steypuskála.

 

Skautskipti 

Skautskipti er það kallað þegar forskauti sem hefur verið líftíma sinn í kerinu er skipt út fyrir nýtt forskaut. Forskautin eru úr kolefni sem brennur upp á ca. 30 dögum og hafa það hlutverk að leiða strauminn frá skautbrú og niður í fljótandi raflausnarefni kersins. Skautskipti eru eitt af flóknari verkferlum kerskálans,  þarfnast vandlegrar þjálfunar og er framkvæmd með fjarstýrðum þjónustukrana. Einnig er lyftari til staðar við skautskipti, er hann notaður til flutninga á nýjum og notuðum skautum, auk þess flytja mokstursbakka sem notaðir eru samfara skautskiptum. Í hverju keri eru 20 forskaut og lætur nærri að skautskipti eigi sér stað 4-5 sinnum í viku í hverju keri.

 

Önnur verkefni í kerskála

Í kerskála þarf að sinna fjölda annar verka. Þau helstu eru: Tilfærsla fljótandi raflausnar, hitamælingar, mæling ál-og raflausnarhæðar, sýnataka, skautbrúalyfting, kerumhirða, kerútskipti og þrif.

 

Allt efni © Norðurál ehf.